19. maí 2006 klukkan 15:48
...gott er að vera léttur í lund, lofa skal hverja ánægju stund...
Hafiði tekið eftir því hvað þessi texti er sorglegur? Ég er að vinna í því að gera nýja tregablandnari útfærslu að laginu... síðan ætla ég að senda skvísu með það í næstu framhaldsskólasöngkeppni og senda það svo til FM og biðja þá um að spila það minnst tuttuguogþrisvar á dag.
Sigríður Sigurðardóttir
09. maí 2006 klukkan 22:26
Ég er ekki búinn að horfa á Skjá Einn síðan 10. janúar.
Núna eru bæði hægt að sjá Skjá Einn og Sirkus og ég get ekki sagt að mér finnist líf mitt hafa batnað með neinum hætti.
...og við í miðjum prófum...
Mikið er ég fegin að hafa týnt sjónvarpsáhuganum mínum.
Sigríður Sigurðardóttir
08. maí 2006 klukkan 17:51
Anna mín, þú þarft ekki að senda mér koddann minn.
Ég er búin að komast að því að það er ekkert verra að sofa með 3 samanbrotnar peysur undir hausnum heldur en fallega tempur heilsukoddann minn.
Ég er alveg jafn stíf í hálsinum og öxlunum...
P.S. Ég verð samt alltaf jafn sár á póstdögum þegar ALLIR hinir krakkarnir fá pakka með nammi og allskonar skemmtilegu dót.
Sigríður Sigurðardóttir
06. maí 2006 klukkan 21:30
Lenti í einu sem fékk mig til að brosa...
Var í prentsmiðjunni og vantaði stíft karton.
Maðurinn sýndi mér pappír og spurði hvort ég vildi hafa hann stífari,
,,já, ég vil hafa hann stífari." sagði ég og glotti yfir því hvað þetta var skondin setning.

Maðurinn kom aftur að vörmu spori með karton og mismælti sig svona líka skemmtilega:
,,Hérna, þetta er það sverasta...nei, stífasta sem við eigum..."

Sver og stífur... það verður ekki mikið betri pappír en það.
Sigríður Sigurðardóttir
17. apríl 2006 klukkan 03:28
Stundum staldra ég við og brosi út í annað yfir sjálfri mér...
Ég er búin að vera ein heima í rúma viku og það eru fimm perur sprungnar.
Sigríður Sigurðardóttir
14. apríl 2006 klukkan 23:35
Ég held ég sé búin að fatta afhverju páskakanínan er kanína en ekki loðfíll eða letidýr...
Það er útaf því að á páskunum eru allir í fríi og þá slakar fólk á og fær fiðring og gerir dónó.
En ekki misskilja mig...ég er ekki búin að vera í fríi eða slaka á...
Sigríður Sigurðardóttir
12. apríl 2006 klukkan 17:00
Hér eru fínir litir og fullt af litlum gulum hausum...
smart.
Oooog gestabók!
...Þetta er bara eins og í fermingu.
Sigríður Sigurðardóttir